Shola Shoretire, leikmaður Manchester United, mun spila með Bolton Wanderers út þessa leiktíð.
Shoretire er 18 ára gamall sóknarsinnaður miðjumaður sem á fimm leiki að baki fyrir United í ensku úrvalsdeildinni.
Hann var valinn besti ungi leikmaður félagsins árið 2021 og er fastamaður í U19 ára landsliði Englands.
Shoretire mun klára tímabilið með Bolton á láni frá United en liðið er sem stendur í 5. sæti C-deildarinnar og gerir sér vonir um að komast í umspil.
Íslenski landsliðsmaðurinn Jón Daði Böðvarsson er á mála hjá Bolton en hann verður frá út tímabilið vegna ökklameiðsla.
Athugasemdir