Steven Gerrard er að gera magnaða hluti með lið Rangers frá Skotlandi.
Rangers vann frábæra útisigur á Royal Antwerp í Evrópudeildinni í gær en leiknum lauk 3-4 í stórskemmtilegum leik.
Rangers er að valta yfir skosku deildina en þar er liðið taplaust á þessari leiktíð eftir 29 umferðir.
Í síðustu 40 leikjum liðsins hefur Rangers unnið 33 af þeim, sex hafa farið jafntefli og aðeins einn tapast.
Magnaður árangur hjá Steven Gerrard en margir telja að hann muni einn daginn taka við Liverpool af Jurgen Klopp, núverandi stjóra liðsins.
Rangers have lost one of their last 40 games.
— ESPN FC (@ESPNFC) February 18, 2021
They've won 33 of them 🤯 pic.twitter.com/KKSy3RFXoI
Athugasemdir