Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 19. mars 2021 06:00
Victor Pálsson
Rashford fór af velli vegna meiðsla
Mynd: Getty Images
Marcus Rashford, leikmaður Manchester United, fór af velli gegn AC Milan í gær vegna smávægilegra meiðsla.

Þetta staðfesti Ole Gunnar Solskjær, stjóri Man Utd, í gærkvöldi eftir að hans menn unnu 1-0 sigur.

Rashford var tekinn af velli í hálfleik en Paul Pogba kom inná í hans stað og gerði svo sigurmark leiksins.

Solskjær sagði að liðið hafi ekki viljað taka neina sénsa með Rashford sem átti annars rólegan fyrri hálfleik.

Pogba var þá að spila sinn fyrsta leik síðan í febrúar en hann var að glíma við meiðsli í læri.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner