Borussia Dortmund og Werder Bremen áttust við í þýsku úrvalsdeildinni í gær.
Milot Rashica kom gestunum yfir snemma leiks en Dortmund svaraði með fjórum mörkum og vann leikinn því sannfærandi.
Erling Haaland skoraði tvö mörk í gær og náði því að binda enda á þessa markaþurrð sína undanfarið.
Hinn ungi Giovanni Reyna jafnaði metin fyrir Dortmund með sannkölluðum þrumufleyg.
Hann fékk þá sendingu frá Mateu Morey og tók skotið í skrefinu, rétt fyrir utan vítateig og þrumaði knettinum upp í samskeytin nær.
Dortmund er í 5 sæti deildarinnar með 49 stig.
GIO REYNA WITH A ROCKET FOR DORTMUND 🚀 pic.twitter.com/GqSZFOfPb9
— ESPN FC (@ESPNFC) April 18, 2021
Athugasemdir