Man City leiðir baráttuna um Gibbs-White - Chelsea hefur áhuga á Gyökeres - Watkins til Liverpool?
   lau 19. apríl 2025 06:00
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Hlustaðu í beinni - Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Þátturinn verður í beinni útsendingu frá Suðurlandsbraut.
Þátturinn verður í beinni útsendingu frá Suðurlandsbraut.
Mynd: Fótbolti.net
Það er laugardagur og útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður á sínum stað í beinni útsendingu á X977 í dag milli 12 og 14.

Elvar Geir og Baldvin Borgars eru með sérstaka páskayfirferð í þættinum þessa vikuna.

Smelltu hér til að hlusta á þáttinn í beinni á X977

Fjallað verður um 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins sem hafa boðið upp á óvænt úrslit. Þorlákur Árnason, þjálfari ÍBV sem rúllaði yfir Víking, og Marinó Hilmar Ásgeirsson, leikmaður Kára sem sló út Fylki, verða á línunni.

Þá verður fótboltavikan gerð upp og horft í tíðindi hér heima og erlendis. Það er ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum í Evrópukeppnunum.

Smelltu hér til að hlusta á þáttinn í beinni á X977
Athugasemdir
banner