mið 19. maí 2021 19:48
Ívan Guðjón Baldursson
Hvíta-Rússland: BATE vann en Willum fór útaf í byrjun
Mynd: Getty Images
BATE 2 - 1 Sputnik
0-1 I. Yasinski
1-1 S. Umarov ('31, víti)
2-1 J. Filipovic ('37)

Willum Þór Willumsson var í byrjunarliði BATE Borisov sem tók á móti Sputnik í Hvíta-Rússlandi í dag.

BATE lenti undir snemma leiks og þurfti Willum að fara útaf skömmu síðar, væntanlega vegna meiðsla.

BATE kom til baka þrátt fyrir fjarveru Willums og leiddi 2-1 í leikhlé.

Síðari hálfleikurinn var nokkuð jafn en niðurstaðan verðskuldaður sigur BATE.

BATE Borisov er í öðru sæti, með 23 stig eftir 10 umferðir. Fjórum stigum eftir toppliði Shakhtyor Soligorsk sem er með fullt hús stiga eftir 9 leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner