ÍR og Fjarðabyggð eigast við í 2. deild karla í dag en leiknum hefur verið seinkað um hálftíma vegna vélarbilunar í flugvél.
Leikurinn átti upphaflega að fara fram klukkan 14:00 en lið Fjarðabyggðar er á leið í flug til Reykjavíkur.
Fluginu var hins vegar seinkað vegna vélarbilunar og hefur leiknum því verið seinkað um hálftíma.
Það er gert ráð fyrir því að leikurinn fari fram klukkan 14:30 en hann verður spilaður á Hertz-vellinum í Breiðholti.
ÍR-ingar eru í 4. sæti deildarinnar með 11 stig en Fjarðabyggð á botninum með aðeins 3 stig.
Seinkun um 30 mín vegna vélarbilunar í flugvél.
— ÍR Fótbolti (@IRFotbolti) June 19, 2021
Athugasemdir