Íslenski kantmaðurinn Viðar Ari Jónsson skoraði og lagði upp fyrir Sandefjord sem vann Viking 3-0 í norsku úrvalsdeildinni í dag en þetta var annað mark hans á tímabilinu.
Viðar gerði fyrsta mark Sandefjord á 35. mínútu leiksins áður en Kristoffer Normann Hansen tvöfaldaði forystuna um miðjan síðari hálfleikinn.
Þetta var sjötti leikur Viðars í deildinni á þessu tímabili og var þetta annað markið sem hann gerir á tímabilinu. Hann lagði svo upp þriðja markið sem kom í uppbótartíma síðari hálfleiks og 3-0 sigur Sandefjord staðreynd.
Viðar spilaði allan leikinn fyrir Sandefjord. Samúel Kári Friðjónsson var í byrjunarliði Viking en var skipt af velli undir lok leiks.
Sandefjord er í 12. sæti með 6 stig eftir sigurinn á meðan Viking er í 6. sæti með 12 stig.
Athugasemdir