Ungverjaland er komið yfir gegn Frökkum. Attila Fiola gerði markið í uppbótartíma fyrri hálfleiks við mikinn fögnuð heimamanna í Búdapest.
Frakkar hafa verið með mikla yfirburði í leiknum og skapað sér urmul af færum. Karim Benzema klúðraði dauðafæri á 30. mínútu eftir laglegan undirbúning frá Kylian Mbappe.
Það var því mikið högg fyrir Frakka er Attila Fiola skoraði eftir góða sókn Ungverja í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Hann fékk boltann inn í teignum, var rólegur, áður en hann lagði boltann í vinstra hornið.
Það eru 67 þúsund manns á Puskás-leikvangnum í Búdapest og mátti heyra mikinn fögnuð úr stúkunni.
Hægt er að sjá færið hér fyrir neðan.
Sjáðu færið hjá Benzema
Athugasemdir