19.08.20 - 18:12
Victor Pálsson
Henderson ekki áfram hjá Sheffield - Spenntur fyrir næsta kafla

Dean Henderson.

Mynd: Getty Images

Dean Henderson.

Mynd: Getty Images
Dean Henderson, markvörður Manchester United, hefur staðfest það að hann spili ekki með Sheffield United á næstu leiktíð líkt og undanfarin tvö ár.
Henderson hefur spilað með Sheffield í láni frá United og hjálpaði liðinu að komast í úrvalsdeildina.
Framtíð leikmannsins hefur verið í óvissu en David de Gea er aðalmarkvörður United og mun Henderson ekki sætta sig við bekkjarsetu.
Hvað tekur við hjá Henderson er óljóst en hann mun ekki spila með Sheffield þegar deildin fer af stað í næsta mánuði.
„Ég vil nýta tækifærið og þakka öllum hjá Sheffield síðustu tvö árin. Að komast í úrvalsdeildina með bræðrum mínum og eiga svo tímabilið sem við áttum er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma," sagði Henderson á samskiptamiðlum.
„Ég vil þakka þjálfaranum, liðsfélögunum, starfsfólkinu og auðvitað stuðningsmönnunum sem hafa tekið við mér á ótrúlegan hátt."
„Ég mun horfa til baka á þessi tvö ár sem mikilvægan kafla á mínum ferli og ef eitthvað er þá er ég þakklátur fyrir tækifærið til að læra og þroskast með frábærum hóp af strákum."
„Ég get ekki beðið eftir næsta kafla! Enn og aftur, takk fyrir allt saman."