Chelsea lánar Ziyech til Galatasaray (Staðfest)

Mynd: Galatasaray

Mynd: Galatasaray
Marokkómaðurinn Hakim Ziyech er genginn í raðir Galatasaray á láni frá Chelsea út þetta tímabil.
Ziyech var kynntur fyrir leik liðsins gegn Trabzonspor í kvöld en það sem er áhugaverðast í þessu er það að hann kemur á láni, sem Galatasaray greiðir ekki fyrir og þá getur félagið fengið hann frítt á meðan lánstímanum stendur. Romano heldur því þó fram að Chelsea gæti fengið greitt ef einhverjum skilyrðum er mætt.
Ekkert er samt sem áður alveg frítt í fótboltaheiminum því Galatasaray mun greiða launin en hann mun þéna um 3 milljónir evra í árslaun.
Ziyech er þrítugur og var með launahæstu mönnum Chelsea, en hann hefur lengi reynt að komast frá félaginu.
Hann átti að ganga í raðir Al-Nassr fyrr í sumar en stóðst ekki læknisskoðun. Þá var hann nálægt því að fara til Paris Saint-Germain undir lok janúargluggans en Chelsea hætti að svara símtölum PSG, þrátt fyrir að Ziyech hafi verið mættur til Frakklands.
Erlendir miðlar greindu frá því á dögunum að það hafi endurtekið sig á dögunum þegar hann fór í læknisskoðun hjá Galatasaray, en það var ekki rétt og er hann nú formlega orðinn nýr leikmaður félagsins.