Fotbolti.net
19.08.23 - 20:30
Brynjar Ingi Erluson

Mitrovic til Al-Hilal (Staðfest) - Metsala hjá Fulham

Aleksandar Mitrovic

Aleksandar Mitrovic

Canon

Mynd: EPA

Al-Hilal hefur staðfest kaupin á serbneska framherjanum Aleksandar Mitrovic en hann kemur frá Fulham fyrir tæpar 50 milljónir punda.
Sádi-arabíska félagið hefur verið á eftir Mitrovic síðasta mánuðinn og skapaðist vesen þegar Fulham var ekki tilbúið að ræða við félagið.

Leikmaðurinn neitaði að æfa og spila með liðinu. Viðræðurnar sigldu í strand og samþykkti Mitrovic að snúa aftur til æfinga.

Hann kom við sögu í fyrsta deildarleiknum um síðustu helgi en var ekki í hópnum í dag. Mitrovic gerði allt til að fara frá félaginu og fékk sitt í gegn.

Fulham samþykkti tæplega 50 milljóna punda tilboð Al-Hilal í dag og fór salan í gegn í kvöld.

Mitrovic hefur verið langbesti leikmaður Fulham síðustu ár en á síðsata ári skoraði hann 43 mörk í 46 leikjum í ensku B-deildinni og sló þar markametið, en hann fylgdi því á eftir með að gera 14 mörk í ensku úrvalsdeildinni.

Al-Hilal er komið með skemmtilegt lið. Yassine Bounou, Neymar, Sergej Milinkovic-Savic, Ruben Neves, Malcom og Kalidou Koulibaly eru allir komnir og væntanlega fleiri á leiðinni áður en glugginn lokar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.