Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 19. september 2020 21:20
Ívan Guðjón Baldursson
Birmingham kaupir Scott Hogan af Aston Villa (Staðfest)
Ætlar að skora 20 mörk
Mynd: Getty Images
Birmingham City er búið að festa kaup á Scott Hogan, framherja Aston Villa og írska landsliðsins.

Birmingham borgar 3 milljónir punda fyrir Hogan sem er 28 ára gamall. Hann skoraði 7 mörk í 17 leikjum að láni hjá Birmingham á síðustu leiktíð.

Hogan gerði 10 mörk í 61 leik með Aston Villa en hefur ekki verið með byrjunarliðssæti síðan tímabilið 2017-18.

Hogan, sem á átta leiki að baki fyrir írska landsliðið, var einnig hjá Stoke City að láni í fyrra en þar áður var hann í leikmannahópi Sheffield United sem komst í úrvalsdeildina.


Athugasemdir
banner
banner
banner