Union Berlin er búið að tryggja sér Taiwo Awoniyi á lánssamningi út tímabilið.
Awoniyi er 23 ára gamall framherji sem gerði aðeins eitt mark í tólf leikjum á síðustu leiktíð hjá Mainz í efstu deild þýska boltans.
Hann vonast til að fá fleiri tækifæri í Berlín en hann hefur aldrei komið við sögu í keppnisleik með Liverpool.
Samningur Awoniyi við Liverpool gildir til 2023 og hefur hann gert fína hluti í belgíska boltanum á undanförnum árum.
Athugasemdir