Arsenal á góða möguleika á að fá Rodrygo - Atletico leggur allt kapp á að fá Romero - West Ham hafnaði tilboði í Kudus
   sun 19. september 2021 20:18
Aksentije Milisic
Pepsi Max-deildin: KA valtaði yfir Val í síðari hálfleik
Elfar komst á blað í kvöld.
Elfar komst á blað í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur 1 - 4 KA
1-0 Birkir Már Sævarsson ('5 )
1-1 Sebastiaan Brebels ('25 )
1-2 Nökkvi Þeyr Þórisson ('63 )
1-3 Sebastiaan Brebels ('76 )
1-4 Elfar Árni Aðalsteinsson ('81 )

Lestu um leikinn

Síðasti leikur dagsins í Pepsi Max deild karla var viðureign Vals og KA á Hlíðarenda. Bæði lið áttu möguleika á Evrópusæti fyrir leikinn í dag og því mikið undir.

KR tapaði gegn Víking fyrr í dag og því myndi liðið sem tæki þrjú stig í kvöld fara í þriðja sætið deildarinnar.

Valsmenn byrjuðu betur en bakvörðurinn Birkir Már Sævarsson kom þeim yfir í byrjun leiks. Sebastiaan Brebels jafnaði metin og var staðan 1-1 í hálfleik.

KA gekk frá leiknum í síðari hálfleiknum. Þrjú mörk á átján mínútna kafla sáu til þess að KA fer með þrjú stigin norður í Eyjafjörðinn. Nökkvi Þeyr Þórisson, Brebels og Elvar Árni Aðalsteinsson gerðu mörkin.

KA er nú í þriðja sæti deildarinnar og mætir FH í lokaumferðinni um næstu helgi. Vinni Víkingur Mjólkurbikarinn þá mun 3. sætið í deildinni gefa Evrópusæti.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner