Landsliðskonan Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir var á skotskónum með Harvard-háskólanum um helgina.
Hún gerði tvö mörk, bæði mörk Harvard í jafntefli gegn TCU í háskólaboltanum í Bandaríkjunum.
Hún er núna búin að gera þrjú mörk á nýju tímabili í háskólaboltanum. Lið Harvard er enn taplaust og hefur verið að leika mjög vel til þessa.
Hér fyrir neðan má sjá stórglæsilegt mark sem íslenska landsliðskonan gerði í leiknum.
Áslaug Munda er á sínu öðru ári í Harvard sem er einn virtasti háskóli í öllum heiminum.
Gera má ráð fyrir því að hún verði í landsliðshópnum fyrir leikinn gegn annað hvort Belgíu eða Portúgal í umspili HM í næsta mánuði.
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, cleared for takeoff 🚀🚀🚀#𝐄𝐦𝐛𝐫𝐚𝐜𝐞𝐓𝐡𝐞𝐌𝐨𝐦𝐞𝐧𝐭 | #OneCrimson pic.twitter.com/CnrQdXZurQ
— #16 Harvard Women's Soccer (@Harvard_WSoccer) September 18, 2022
Athugasemdir