Hugo Lloris markvörður Tottenham og franska landsliðsins neyddist til að draga sig úr landsliðshópnum fyrir komandi verkefni gegn Austurríki og Dannmörku í Þjóðadeildinni vegna meiðsla.
Lloris glímir við meiðsli í læri og ríkir óvissa hvort hann verði klár í leik Tottenham gegn Arsenal þann 1. október. Ef Lloris verður ekki klár er líklegast að Fraser Forster verði í markinu.
Stuðningsmenn Tottenham krossa fingur um að Lloris verði klár í slaginn en þó ótrúlegt megi virðast gera Arsenalmenn það mögulega líka.
Forster hefur tekist að halda hreinu gegn Arsenal í síðstu tveimur leikjunum sem hann hefur mætt liðinu og unnið í bæði skiptin, báðir leikirnir enduðu með 1-0 sigri Southampton.
Árið 2016 bætti Forster persónulegt met þegar hann varði tíu skot í leik gegn Arsenal en fyrra metið hans var sjö skot varin sem hann gerði einnig gegn Arsenal.
Sjá einnig:
Lloris dregur sig úr franska hópnum