mán 19. september 2022 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þorleifur kom við sögu í tapi
Mynd: Houston Dynamo

Þorleifur Úlfarsson byrjaði á varamannabekknum hjá Houston Dynamo sem heimsótti LAFC í MLS deildinni í Bandaríkjunum í nótt.


Hann kom inná undir lok leiksins en þá var leikurinn svo gott sem búinn en hann endaði með 3-1 sigri LAFC. Carlos Vela fyrrum leikmaður Arsenal skoraði tvö mörk úr vítum fyrir LAFC.

LAFC gerði tvöfalda skiptingu eftir rúmlega klukkutíma leik og Carlos Vela fór m.a. útaf og Gareth Bale kom inná.

Houston Dynamo er með 33 stig eftir 32 leiki í næst neðsta sæti Vesturdeildar en LAFC er á toppnum með 64 stig.


Athugasemdir
banner
banner
banner