Fotbolti.net
19.10.19 - 10:20
Ívan Guðjón Baldursson

Mandzukic æfir ekki með liðsfélögunum

Mandzukic er 33 ára.

Mandzukic er 33 ára.

Canon

Mynd: Getty Images

Mario Mandzukic æfir ekki með restinni af leikmannahóp Juventus um þessar mundir. Maurizio Sarri staðfesti þetta við fjölmiðla í gær.
Tími hans hjá félaginu virðist vera liðinn og mun hann, að öllum líkindum, skipta um lið í janúar.

Manchester United er talinn líklegasti áfangastaður Mandzukic. Króatinn er fjölhæfur og gríðarlega leikreyndur og gæti komið sér vel til að auka breiddina í sóknarleik Rauðu djöflanna.

Man Utd hefur einnig verið orðað við Paulo Dybala, Emre Can og Alex Sandro hjá Juve. Þessa stundina virðist Can vera líklegastur til að koma yfir ásamt Mandzukic.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.