Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 19. október 2020 13:30
Elvar Geir Magnússon
Robinho: Sé bara eftir því að hafa haldið framhjá eiginkonu minni
Brasilíumaðurinn Robinho.
Brasilíumaðurinn Robinho.
Mynd: Getty Images
Robinho, fyrrum leikmaður Manchester City og Real Madrid, neitar því að hafa tekið þátt í nauðgun á 22 ára albanskri konu fyrir sjö árum.

Hann var dæmdur í níu ára fangelsi 2017 en áfrýjaði og neitar sök. Málið er enn í gangi og beðið eftir niðurstöðu.

Eins og við greindum frá um helgina þá ákvað brasilíska félagið Santos að rifta samningi við þennan 36 ára leikmann. Hann samdi við félagið nýlega en þrýstingur frá styrktaraðilum gerðu það að verkum að samningi var rift.

Robinho segist aðeins sjá eftir því að hafa haldið framhjá eiginkonu sinni en hann hefur verið giftur henni síðan 2009 og eiga þau þrjú börn saman.

„Ég sé eftir því að hafa haldið framhjá eiginkonu minni. Það er mín eftirsjá. Ýmislegt hefur verið sett á prent til að selja dagblöð og tímarit. Ég hef breyst mikið á sjö árum, þetta átti sér stað 2013 og ég er orðinn betri maður," segir Robinho.

„Mistökin sem ég gerði var að vera ekki trúr eiginkonu minni. Ég nauðgaði ekki konunni eða gerði nokkuð án hennar samþykkis."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner