Fotbolti.net
19.10.23 - 12:00
Elvar Geir Magnússon

Ramsdale segist þjáður og sár - „Pabbi fékk sér aðeins of marga í golfferðinni“

Aaron Ramsdale segist þjáður og sár yfir því að vera ekki að spila.

Aaron Ramsdale segist þjáður og sár yfir því að vera ekki að spila.

Canon

Mynd: EPA

Aaron Ramsdale segir það hafa tekið mikið á andlega að hafa misst stöðu sína sem aðalmarkvörður Arsenal til David Raya.

Sjónvarpsmyndavélarnar hafa beinst að Ramsdale á varamannabekknum og sýnt öll viðbrögð hans við því sem Raya hefur gert. Ramsdale sást fagna marvörslu Raya og fékk fyrir það skot á sig.

Jamie Carragher sparkspekingur á Sky Sports sagði að Ramsdale hefði verið eins og einhver sem hefði verið að tapa á Óskarsverðlaununum og klappað fyrir sigurvegaranum.
Arteta um Ramsdale: Alltaf erfitt að sitja á bekknum
TENGT EFNI

Arteta um Ramsdale: Alltaf erfitt að sitja á bekknum


„Ég er ekki vanur þessari stöðu. Stundum gerir þú það rétta en það er talið rangt en ef þú gerir það ekki þá er það líka talið rangt. Svo þetta er tvíeggja sverð," segir Ramsdale um þá athygli sem öll viðbrögð hans eru að fá.

„Það er mikil athygli. Hvort sem það er ég eða David sem er að spila þá verðum við að halda einbeitingu en þetta er skrítin staða, margar fyrirsagnir. Samband okkar er gott og við vinnum faglega saman, við setjum pressu á hvorn annan á æfingum. Þrátt fyrir að ég sé þjáður og sár yfir því að vera ekki að spila."

Pabbi Ramsdale, Nick, svaraði skotinu frá Carragher á samfélagsmiðlum og sagði að ummæli hans væru til skammar. Hann sagði að Carragher þyrfti að sýna smá reisn eins og sonur sinn hefði gert.

„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem nafnið mitt hefur verið í fjölmiðlum og það hafa verið fleiri neikvæðar umfjallanir. Þessi skrif hjá pabba mínum hjálpuðu ekki en hann var í golfferð með nítján félögum sínum af hverfisbarnum. Ég var ekkert of reiður út í hann, hann fór ekki yfir strikið en þetta hjálpaði mér ekki í þessum aðstæðum. Hann veit það sjálfur en fékk sér greinilega of marga á golfhringnum," segir Ramsdale.
Mikel Arteta og Aaron Ramsdale.

Mikel Arteta og Aaron Ramsdale.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.