Fotbolti.net
19.10.23 - 20:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Robertson ekki meira með á árinu? - Gakpo byrjaður að æfa

Robertson ekki meira með á árinu? - Gakpo byrjaður að æfa
Canon

Mynd: Getty Images

Það eru góðar og slæmar fréttir úr herbúðum Liverpool en hollenski framherjinn Cody Gakpo var mættur á sína fyrstu æfingu í dag eftir að hafa farið meiddur af velli í tapi gegn Tottenham í síðasta mánuði.

Gakpo skoraði mark Liverpool í leiknum undir lok fyrri hálfleiks í 2-1 tapi en hann hafði verið sjóðandi heitur fyrir framan markið í undanförnum leikjum áður en hann meiddist.

Hann skoraði fimm mörk í sex leikjum, þrjú fyrir Liverpool og tvö fyrir hollenska landsliðið.

Liverpool fær Everton í heimsókn í grannaslag á laugardaginn og gæti Gakpo verið klár í slaginn. Andy Robertson er hins vegar fjarverandi eftir að hafa farið úr axlarlið í 2-0 tapi Skotlands gegn Spáni á dögunum.

Mirror greinir frá því að hann gæti verið frá í sex vikur en ef hann þarf á aðgerð að halda gæti hann verið fjarverandi út árið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.