Fotbolti.net
19.10.23 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson

Stjóri Man Utd brjálaður: Viljum ekki hafa miðlungs lið í þessari keppni

Stjóri Man Utd brjálaður: Viljum ekki hafa miðlungs lið í þessari keppni
Canon

Mynd: Getty Images

Hertz
Marc Skinner, stjóri kvennaliðs Manchester United, vandar UEFA, fótboltasambandi Evrópu, ekki kveðjurnar og segir að eitthvað þurfi að breytast til að gera Meistaradeildina að betri keppni.
Skinner var ósáttur að mæta Paris Saint-Germain, einu af bestu liðum heims, í 2. umferð Meistaradeildarinnar.

Liðið tapaði samanlagt, 5-3, í tveggja leikja rimmu gegn PSG og kemst því ekki í riðlakeppnina, en Skinner segir þetta leiðinlegt og eigi ekki að geta gerst í risakeppni eins og Meistaradeildinni.

„Við eigum skilið að vera þarna. Það eru lið sem eru að komast áfram sem eru ekki nógu góð,“ sagði Skinner.

„Það er klikkun að við þurfum að spila við PSG á þessu stigi keppninnar. Við lærum af þessum og komum til baka, en ég vona að eitthvað breytist því við viljum bestu liðin í Meistaradeildinni, ekki fullt af miðlungsliðum,“ sagði hann enn fremur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.