David Fernandez Hidalgo hefur skrifað undir samning við Vestra í Lengjudeild karla en þetta staðfesti félagið í kvöld.
Hidalgo er spænskur leikmaður en hann lék með Leikni Fáskrúðsfirði á síðustu leiktíð við góðan orðstír.
Samtals spilaði Hidalgo 17 leiki og skoraði eitt mark en hann getur leyst stöðu miðju og á væng.
Hidalgo er fæddur árið 1993 og hittir félaga sinn Nacho Gil hjá Vestra en hann framlengdi samning sinn í dag.
Vestri átti gott tímabil í sumar og hafnaði í sjöunda sæti næst efstu deildar.
Athugasemdir