fim 19. nóvember 2020 12:39
Magnús Már Einarsson
Guardiola framlengir um tvö ár (Staðfest)
Pep Guardiola
Pep Guardiola
Mynd: Getty Images
Manchester City hefur staðfest að Pep Guardiola hafi skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið.

Guardiola var áður með samning þar til næsta sumar og vangaveltur hafa verið um framtíð hans. Hann hefur nú skrifað undir nýjan samning sem gildir til ársins 2023.

„Það er áskorun fyrir okkur að halda áfram að bæta okkur og þróast og ég er mjög spenntur að hjálpa Manchester City við það," sagði Guardiola eftir undirskrift.

Hinn 49 ára gamli Guardiola hefur unnið átta titla með Manchester City síðan hann kom til félagsins árið 2016 en liðið hefur unnið 73,87% leikja undir hans stjórn.


Athugasemdir
banner
banner