Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 19. nóvember 2020 19:54
Victor Pálsson
Oriol Romeu framlengir við Southampton (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Oriol Romeu hefur krotað undir nýjan samning við enska úrvlasdeildarfélagið Southampton.

Romeu er einn allra mikilvægasti leikmaður Southampton en hann er fastamaður á miðju liðsins.

Samningur leikmannsins átti að renna út næsta sumar en hann krotaði undir nýjan tveggja og hálfs árs langan samning eða til ársins 2023.

Romeu er 29 ára gamall miðjumaður og hefur leikið með Southampton síðan 2015 eftir komu frá Chelsea.

Samtals á Spánverjinn að baki 198 leiki fyrir Dýrlingana og eru þetta gleðifréttir fyrir stuðningsmenn liðsins.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner