Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 20. janúar 2022 23:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ákvað að nefna Martinelli upp úr þurru - „Framúrskarandi"
Spennandi leikmaður.
Spennandi leikmaður.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, er mjög hrifinn af Brasilíumanninum Gabriel Martinelli sem leikmanni.

Martinelli var í byrjunarliði Arsenal gegn Liverpool í undanúrslitum enska deildabikarsins í kvöld. Leikurinn endaði með 0-2 sigri Liverpool.

Eftir leikinn sat Klopp fyrir svörum á fréttamannafundi. Hann fékk ekki spurningum um Martinelli en ákvað að láta fréttamenn vita að þarna væri öflugur leikmaður á ferðinni.

„Allir eiga að leggja þetta nafn á minnið. Hann er framúrskarandi leikmaður," sagði Klopp þegar hann fékk spurningu um að mæta Chelsea í úrslitaleiknum. Hann ákvað að minnast á Martinelli upp úr þurru.

Martinelli, sem er tvítugur, er á sínu öðru tímabili í Englandi. Hann þykir mjög spennandi leikmaður.
Athugasemdir
banner
banner
banner