Enska úrvalsdeildarfélagið Bournemouth hefur fest kaup á Dango Ouattara frá Lorient í Frakklandi.
Outtara er tvítugur landsliðsmaður Búrkína Fasó og hefur skorað 6 mörk í frönsku deildinni á þessu tímabili.
Framherjinn er nú mættur til Bournemouth fyrir 20 milljónir punda en hann skrifaði undir fimm og hálfs árs samning við félagið í gær.
Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Gary O'Neil, nýr stjóri Bournemouth, fær til félagsins.
Ouattara á 11 landsleiki fyrir Búrkína Fasó og hefur skorað 5 mörk í þeim.
It's ???????? ???????????????? ???????? pic.twitter.com/bCAbCdbMDJ
— AFC Bournemouth ???? (@afcbournemouth) January 19, 2023
Athugasemdir