Fotbolti.net
20.01.23 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

Guðmundur Óli ráðinn spilandi aðstoðarþjálfari Magna (Staðfest)

Guðmundur Óli ráðinn spilandi aðstoðarþjálfari Magna (Staðfest)
Canon

Mynd: Magni

Guðmundur Óli Bergmann er kominn til Magna frá Völsungi en hann verður spilandi aðstoðarþjálfari liðsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Grenivíkurliðinu.
Þessi reynslumikli leikmaður hefur spilað fyrir félög á borð við KA, KFG, KV og Þór ásamt því að spila með uppeldisfélaginu, Völsungi.

Guðmundur, sem verður 37 ára í næsta mánuði, mun nú taka slaginn með Magna í 3. deildinni.

Hann á að baki 275 leiki og 44 mörk í næst efstu deild og 2. deild en hann kemur með gríðarlega reynslu inn í hópinn.

Auk þess verður hann aðstoðarþjálfari liðsins og verður því Óskari Bragasyni innan handar.

Magni féll úr 2. deildinni síðasta sumar en liðið hafnaði í neðsta sæti deildarinnar með 17 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.