Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 20. janúar 2023 11:41
Elvar Geir Magnússon
Rasmus í Aftureldingu (Staðfest) - „Liðið spilar mjög skemmtilegan bolta“
Lengjudeildin
Mynd: Afturelding
Danski varnarmaðurinn Rasmus Christiansen hefur gengið til liðs við Aftureldingu í Lengjudeildinni. Hinn 33 ára gamli Rasmus kemur frá Val þar sem hann hefur leikið undanfarin sjö ár. Á þeim tíma vann Ramus þjáÍslandsmeistaratitla og einn bikarmeistaratitil.

Rasmus hefur á ferli sínum á Íslandi einnig leikið með ÍBV, KR og Fjölni en hann á að baki 172 leiki í efstu deild sem og fjölda leikja í öðrum keppnum.

Afturelding hefur staðfest komu hans og ljóst að Rasmus er hrifinn af mörgu af því sem kemur úr Mosfellsbænum.

„Mér líst mjög vel á allt sem er að gerast í Mosfellsbæ og langar að taka þátt í því. Ég þekki Aron Elí Sævarsson og hef heyrt frá honum hvernig þetta hefur verið. Afturelding spilar mjög skemmtilegan bolta og það verður gaman að taka þátt í því," sagði Rasmus við samfélagsmiðla Aftureldingar.

Afturelding hafnaði í áttunda sæti Lengjudeildarinnar í fyrra.



Athugasemdir
banner
banner
banner