Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 20. janúar 2023 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Wolves lánar Guedes til Benfica (Staðfest)
Goncalo Guedes er farinn aftur heim til Benfica
Goncalo Guedes er farinn aftur heim til Benfica
Mynd: EPA
Portúgalska félagið Benfica staðfesti seint í nótt komu Goncalo Guedes til félagsins frá Wolves en hann verður á láni út þetta tímabil.

Wolves keypti Guedes frá Valencia síðasta sumar fyrir 27,5 milljónir punda og var til mikils vænst af honum.

Hann stóðst þó engan veginn þær væntingar sem gerðar voru til hans og aðeins komið að tveimur mörkum í þrettán deildarleikjum.

Guedes hefur aðeins spilað í bikarleikjum síðasta mánuðinn en síðasti deildarleikur hans var á annan í jólum.

Portúgalski vængmaðurinn er nú mættur aftur heim til Benfica á láni út tímabilið. Enginn kaupréttur er inn í lánssamningnum.

Guedes ólst upp hjá Benfica og spilaði þrjú tímabil með aðalliðinu áður en hann var keyptur til Paris Saint-Germain árið 2017. Þar náði hann aldrei að finna sig og var lánaður til Valencia, en spænska félagið festi síðan kaup á honum ári síðar.


Athugasemdir
banner
banner
banner