Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fim 20. febrúar 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alan Hutton tilkynnti að hann sé hættur
Hutton lék síðasta fyrir Aston Villa.
Hutton lék síðasta fyrir Aston Villa.
Mynd: Getty Images
Alan Hutton, fyrrum bakvörður Aston Villa, Rangers og skoska landsliðsins er hættur í fótbolta - 34 ára að aldri.

Hann hefur verið án félags frá því að samningur hans við Aston Villa rann út síðasta sumar.

Hutton lék 50 A-landsleiki fyrir Skotland og var einnig á mála hjá Tottenham, Sunderland, Nottingham Forest, Mallorca og Bolton - auk Rangers og Aston Villa.

Skotinn segist vera óviss með næstu skref en þjálfun er ekki eitthvað sem heillar hann.

Hutton skoraði eftirminnilegt mark á síðasta tímabili í 4-2 sigri Aston Villa gegn erkifjendunum í Birmingham. Markið, sem er vægast sagt glæsilegt, má sjá hérna.
Athugasemdir
banner
banner
banner