Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 20. febrúar 2020 17:35
Ívan Guðjón Baldursson
Rúnar Már skoraði í æfingaleik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sochi 3 - 1 FC Astana
1-0 A. Mostovoy ('23)
2-0 N. Burmistrov ('36)
2-1 Rúnar Már Sigurjónsson ('64, víti)
3-1 A. Mostovoy ('86)

Rúnar Már Sigurjónsson skoraði eina mark FC Astana í 3-1 tapi í æfingaleik gegn rússneska félaginu PFC Sochi í dag.

Andrey Mostovoy skoraði tvennu fyrir Sochi en mark Rúnars kom úr vítaspyrnu í seinni hálfleik, í stöðunni 2-0.

Rúnar Már spilaði síðustu tvo keppnisleiki Astana í Evrópudeildinni fyrr í vetur og spilaði 90 mínútur í tveimur af þremur leikjum á æfingamóti með skandínavískum félögum fyrr í mánuðinum.

Astana vann deildina í Kasakstan í fyrra og hefst næsta deildartímabil í byrjun mars.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner