Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 20. apríl 2021 23:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gulli lék allan leikinn í sigri - Aron Jó á bekknum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn þegar Darmstadt vann 1-3 útisigur á Wurzburger Kickers í þýsku B-deildinni.

Gulli var samkvæmt Flashscore djúpur á miðju í leiknum. Darmstadt komst yfir með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma fyrri hálfleiks en heimamenn jöfnuðu á 63. mínútu. Darmstadt komst aftur yfir á 79. mínútu og sigurinn var svo innsiglaður á þriðju mínútu uppbótartíma með þriðja markinu.

Darmstadt er í 10. sæti deildarinnar með 39 stig eftir 30 leiki. Markatala liðsins er á núlli, fimmtíu mörk skoruð og fimmtíu fengin á sig.

Í Pólsku Ekstraliga vann Lech Poznan 3-0 heimasigur á Lechia Gdansk. Aron Jóhannsson var ónotaður varamaður í annað sinn af síðustu þremur leikjum.

Lech er í 9. sæti með 33 stig eftir 26 leiki spilaða. Fjórar umferðir eru efir af deildinni.
Athugasemdir
banner
banner