Fotbolti.net
20.06.23 - 22:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Skrifar frá: Laugardalsvöllur

Rúnar Alex: Get ekki gamblað

Auglýsing
Rúnar Alex: Get ekki gamblað
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Ég er eiginlega bara orðlaus, þetta er bara fótbolti held ég. Við vorum búnir að verjast þvílíkt vel í 89 mínútur og svo veit ég ekki hvort þetta sé rangstaða. Þetta er bara pirrandi. Svekktur," sagði Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður íslenska landsliðsins, við Fótbolta.net eftir grátlegt tap gegn Portúgal í kvöld.
„Ég er búinn að sjá markið aftur, þeir spila stutt úr horni og við - manni færri og þreyttir - náum ekki að pressa nógu vel. Hann kemur sér í skot/krosstöðu þannig ég lendi mill á milli - get ekki gamblað ef hann myndi rúlla honum í hitt hornið. Ég þarf að vera í aðeins varnarsinnaðri stöðu, það kemur vippa..."

„Eins og ég sagði eftir síðasta leik að þetta fellur allt á móti okkur núna og við þurfum að breyta því sjálfir. Öll þessi 50-50 atriði sem enda í mörkum detta með liðinu, við þurfum að snúa þessu við."


Tilfinningin fram að markinu var geggjuð. „Fyrsta sinn sem ég spila fyrir troðfullan Laugardalsvöll og mér fannst við vera með góða stjórn. Ég á nokkrar vörslur í þessum leik en mér fannst þeir aldrei opna okkur og okkur leið vel. Að fá svona mark á sig á 90. mínútu er ógeðslega súrt og sárt," sagði Rúnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.