Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 20. júlí 2020 09:30
Magnús Már Einarsson
Jude Bellingham til Dortmund (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Borussia Dortmund hefur keypt miðjumanninn efnilega Jude Bellingham frá Birmingham.

Hinn 17 ára gamli Bellingham hefur vakið mikla athygli með Birmingham í Championship deildinni.

Manchester United vildi fá Bellingham í sínar raðir en hann ákvað að velja Dortmund frekar og feta í fótspor landa síns Jadon Sancho sem fór ungur til þýska félagsins.

Dortmund greiðir 25 milljónir punda fyrir Bellingham en fleiri milljónir gætu bæst við ef hann stendur sig vel hjá félaginu.

Dortmund kynnti Jude til leiks með skemmtilegu myndbandi eins og sjá má hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner