Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 20. júlí 2020 14:20
Magnús Már Einarsson
Santi Cazorla til Al Sadd (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Al Sadd í Katar hefur fengið spænska miðjumanninn Santi Cazorla til liðs við sig.

Hinn 35 ára gamli Cazorla kemur frítt frá Villarreal eftir að samningur hans þar kláraðist.

Þjálfari Al Sadd er Xavi, fyrrum liðsfélagi Cazorla úr spænska landsliðinu.

Cazorla er kominn aftur á fleygiferð eftir erfið meiðsli undir lok ferils síns hjá Arsenal en hann var á mála hjá enska félaginu frá 2012 til 2018.

Um tíma var óttast að Cazorla þyrfti að leggja skóna á hilluna en hann hefur náð flugi á nýjan leik
Athugasemdir
banner