Fotbolti.net
20.07.21 - 09:51
Fótbolti.net

Gylfi nafngreindur sem sá sem var handtekinn

Gylfi Þór Sigurðsson.

Gylfi Þór Sigurðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sig­urðsson, leikmaður Evert­on, er leikmaðurinn sem hefur verið til rannsóknar lögreglunnar á Englandi, samkvæmt heimildum mbl.is.

Mbl.is reyndi án árangurs að ná sambandi við Gylfa við vinnslu fréttarinnar en án árangurs.
Gylfi hef­ur ekki verið nafn­greind­ur í bresk­um fjöl­miðlum af lagalegum ástæðum en fjölmiðlar í öðrum löndum hafa nafngreint hann.

Everton sendi frá sér yfirlýsingu í gærkvöldi og staðfesti að leikmaður á þeirra vegum hafi verið handtekinn á dögunum.

Yfirlýsingin kemur í kjölfar frétta enskra fjölmiðla um að 31 árs gamall leikmaður í ensku úrvalsdeildinni hafi verið handtekinn á föstudag grunaður um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi. Samkvæmt fréttum var gerð húsleit heima hjá honum.

„Lögreglumenn handtöku 31 árs gamlan mann föstudaginn 16. júlí vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni. Hann var látinn laus gegn tryggingu á meðan rannsókn fer fram," kemur fram í yfirlýsingu frá lögreglunni í Manchester.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.