20.07.22 - 15:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Áttundi og níundi leikmaðurinn til Forest (Staðfest)

O'Brien

Mynd: Nottingham Forest

O'Brien

Mynd: Nottingham Forest
Lewis O'Brien og Harry Toffolo eru gengnir í raðir Nottingham Forest frá Huddersfield Town.
O'Brien er 23 ára miðjumaður sem lék 43 leiki með Huddersfield í Championship á síðasta tímabili og skoraði þrjú mörk.

Toffolo er 26 ára vinstri bakvörður sem uppalinn er hjá Norwich en hafði verið hjá Huddersfield frá árinu 2020. Hann er fyrrum unglinglandsliðsmaður Englands. Toffolo lék 42 leiki með Huddersfield í vetur og skoraði sex mörk.
Forest, sem komst upp í úrvalsdeildina í gegnum umspilið í Chamionship í vor, hefur fengið tíu leikmenn til sín í sumar.
Það eru þeir Taiwo Awoniyi, Dean Henderson, Giulian Biancone, Moussa Niakhate, Omar Richards, Neco Williams, Wayne Hennessey, Brandon Aguilera, og svo þeir Harry Toffolo og Lewis O'Brien.