20.07.22 - 18:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Eiður Ben tekur við þjálfun 3. flokks KA (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eiður Ben Eiríksson tekur við sem þjálfari 3. flokks karla hjá KA í byrjun ágúst. Hann tekur við af Óskari Bragasyni sem tók við af Sveini Þór Steingrímssyni sem þjálfari Magna Grenivík á dögunum.
Eiður mun einnig koma að þjálfun í öðrum flokkum félagsins.
Hann var látinn fara frá Þrótti Vogum í Lengjudeildinni en hann hafði áður þjálfað kvenna lið Vals og gerði það að Íslandsmeisturum síðasta haust og árið 2019.
„Eiður er með UEFA A þjálfaragráðu og UEFA Youth Elite A ásamt því að vera í UEFA Pro námi sem er hæsta þjálfaragráða sem hægt er að fá. Þá kláraði hann einnig Sports Management frá Johan Cruyff Institute. Það er því mikill fengur að fá þennan reynslumikla og hæfa þjálfara til félagsins og erum við afar spennt fyrir samstarfinu með Eið. Velkominn norður!" Segir í tilkynningu á KA.is.
