Arnar Gunnlaugs: Margt fallegt að gerast í Víkinni núna

Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Víkingar tóku á móti Lettneska liðinu Riga FC þegar seinni leikurinn í þeirra einvígi fór fram á Víkingsvelli nú í kvöld. Riga FC leiddi einvígið fyrir leikinn með tveimur mörkum en eftir leikinn í dag er Víkingur úr leik í Sambandsdeild Evrópu þrátt fyrir 1-0 sigur á Riga í Víkinni í kvöld en Lettneska liðið fer samanlagt áfram, 2-1.
„Við erum nátturlega dottnir út og þetta snýst um að komast áfram með öllum ráðum en ef þú dettur út þá villtu detta út svona og eftir svona frammistöðu sérstaklega í seinni hálfleiknum sem var örugglega með þeim betri sem að ég hef séð mitt lið spila." Sagði Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga eftir leikinn í kvöld
„Við herjuðum vel á þá og markið kom loksins en spurning hvort það kom aðeins og seint en við náðum allavega að gera það sem ég bað um fyrir leikinn að fá alvöru Víkings frammistöðu og spurja þá einhverjar spurningar afþví að okkur fannst við skulda smá frammistöðu eftir sérstaklega fyrri hálfleikinn úti."
Víkingar gerðu tilkall í nokkrar vítaspyrnur í leiknum og í eitt skiptið fengu bæði Danijel Djuric spjald fyrir dýfu og Arnar fyrir viðbrögðin.
„Ég ætla bara að vona dómarans vegna að hann hafi rétt fyrir sér. Þetta virkar alltaf eftir hvaða gleraugu þú setur á þig, Danijel er nátturlega minn leikmaður og virkaði eins og það væri einhver snerting og mögulega var það ekki og þá nátturlega reynir þú að vekja athygli á því og að ég hafi fengið gult spjald fyrir þetta, það hefur nú ýmislegt verið sagt í boðvanginum í Bestu deildinni án þess að menn fái spjald fyrir það en svona er þetta bara."
Víkingar eru núna dottnir úr Evrópukeppni og setja þá fullan fókus á að vinna deildina og reyna komast eins langt og þeir geta í bikarnum.
„Það tekur við núna spennufall í 2-3 daga en það má ekki vara lengi því að við eigum svakalegan leik á móti KR á sunnudaginn. Það kemur svona spennufall og menn fara að vorkenna sér aðeins og þeir mega gera það í kvöld en svo á morgun þá þarf hausin að vera vel skrúfaður á fyrir átökin á sunnudaginn. Við erum með sex stiga forskot og undanúrslit í bikar og það er margt fallegt að gerast í Víkinni núna og margt að spila fyrir að reyna stefna að því að vinna tvöfallt í annað skiptið á þremur árum og svo maður heldur áfram að telja að þá er búið að vera spila um held ég níu titla núna á fimm árum og við höfum kannski mögulega náð að vinna sex af þeim og það er ótrúlegt að vera inni í þessum keppnum og við þurfum að respecta það og vera fljótir að koma volæðinu í burtu úr hausnum á okkur og snúa okkur að KR á sunnudaginn."
Nánar er rætt við Arnar Gunnlaugsson í spilaranum hér fyrir ofan.




