Aaron Ramsey var meiddur stóran hluta undirbúningstímabilsins en kom af bekknum og spilaði síðustu 20 mínúturnar í 0-1 sigri Juventus gegn Triestina um helgina.
Ramsey meiddist undir lok síðasta tímabils og var þetta fyrsti leikurinn sem hann tók þátt í síðan 18. apríl. Hann segist vera klár í sleginn og spenntur fyrir ítalska boltanum.
„Ég er mjög spenntur fyrir ítalska boltanum og hlakka ótrúlega mikið til að spila fyrsta keppnisleikinn næsta laugardag," sagði Ramsey.
„Ég fylltist af stolti þegar ég skokkaði inn á völlinn klæddur í þessa treyju. Við höfum verið að æfa stýrt með nýjum þjálfara sem er að kenna okkur nýjan leikstíl."
Ólíklegt er að Ramsey verði í byrjunarliði Ítalíumeistaranna á upphafi tímabils. Hann segist sjálfur þurfa smá tíma til að koma sér í gott leikform.
Very happy to play my first game tonight 💪🏼 Looking forward to it all beginning next week #forzajuve #seriea pic.twitter.com/yVKmDQIKQm
— Aaron Ramsey (@aaronramsey) August 17, 2019
Athugasemdir