Canos farinn frá Brentford (Staðfest) - Samdi við Valencia

Sergi Canos er farinn til Valencia

Mynd: Getty Images

Sergi Canos er farinn til Valencia

Mynd: Getty Images
Spænski leikmaðurinn Sergi Canos er genginn til liðs við Valencia frá Brentford.
Canos er 26 ára gamall og er með leikjahæstu leikmönnum í sögu Brentford en aðeins tólf leikmenn hafa spilað fleiri leiki fyrir félagið en hann.
Á síðasta tímabili glímdi hann við erfið meiðsli og ákvað að fara á láni til Olympiakos í janúarglugganum.
Hann sneri aftur til Brentford í sumar en ákvað að leita aftur heim til Spánar og semja við Valencia.
Canos var áður á mála hjá Liverpool og Norwich en hann er uppalinn hjá Espanyol á Spáni.

Gracias, Sergi ????
— Brentford FC (@BrentfordFC) August 20, 2023
After six-and-a-half wonderful years together, @sergicanos has completed a permanent move to Valencia CF this morning
All the best for the future ???? pic.twitter.com/oLUcQQOcFs