Fotbolti.net
20.08.23 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Frá Atalanta til Al-Ahli (Staðfest)

Frá Atalanta til Al-Ahli (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tyrkneski miðvörðurinn Merih Demiral er genginn í raðir Al-Ahli í Sádi-Arabíu en hann kemur frá Atalanta.
Demiral er með svakalega reynslu úr Seríu A en hann kom fyrst til Ítalíu árið 2019 á láni til Sassuolo.

Síðan þá hefur hann spilað fyrir bæði Juventus og Atalanta, ásamt því að vera fastamaður í tyrkneska landsliðinu.

Þessi 25 ára gamli miðvörður hefur ákveðið að elta seðilinn til Sádi-Arabíu en hann var kynntur hjá Al-Ahli í gær.

Al-Ahli er komið með ágætis hóp en á Riyad Mahrez, Allan Saint-Maximin, Roberto Firmino, Edouard Mendy, Roger Ibanez og Franck Kessie eru allir mættir og þá er Ezgjan Alioski, fyrrum leikmaður Leeds, einnig á mála hjá félaginu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.