Fotbolti.net
20.08.23 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

Magnaður Messi með flesta titla í sögunni (Staðfest)

Lionel Messi er titlahæstur í sögunni

Lionel Messi er titlahæstur í sögunni

Canon

Mynd: Getty Images

Heimsmeistarinn Lionel Messi er nú með flesta titla í sögu fótboltans eftir að hann og félagar hans í Inter Miami unnu deildabikarinn eftir dramatík í nótt.
Messi lét sér það ekki bara nægja að fagna 44. titlinum á ferlinum heldur skoraði hann einnig glæsimark í úrslitaleiknum gegn Nashville.

Þá fékk hann boltann fyrir utan teiginn, lagði hann á vinstri fótinn og setti hann í samskeytin. Nashville kom til baka í síðari hálfleiknum en Miami fékk svo sannarlega tækifærin til að gera út um leikinn.

Messi átti skot í stöng og þá klúðraði Leonardo Campana algeru dauðafæri í uppbótartíma er hann var kominn einn gegn opnu marki.

Það kom sem betur fer ekki að sök því Miami vann eftir dramatíska vítakeppni þar sem leikar enduðu, 10-9, en Messi, Sergio Busquets og Jordi Alba skoruðu allir úr sínum spyrnum.

Messi endaði markahæstur og bestur í bikarnum með 10 mörk og tryggði um leið Miami sæti í 16-liða úrslit Meistaradeildar CONCACAF.

Bikarinn er sá fyrsti í sögu Inter Miami frá því félagið var sett á laggirnar fyrir fimm árum.

Fyrir þennan leik voru þeir Messi og Dani Alves jafnir með 43 titla en Messi er nú titlahæsti fótboltamaður sögunnar.



Messi og David Beckham, eigandi Inter Miami, föðmuðust í leikslok

Messi og David Beckham, eigandi Inter Miami, föðmuðust í leikslok

Canon

Mynd: Getty Images

Messi var bæði markahæstur og besti maður mótsins

Messi var bæði markahæstur og besti maður mótsins

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.