Fotbolti.net
20.08.23 - 09:26
Brynjar Ingi Erluson

Tyler Adams til Bournemouth (Staðfest)

Tyler Adams til Bournemouth (Staðfest)
Canon

Mynd: Bournemouth

Bournemouth gekk í dag frá kaupum á bandaríska miðjumanninum Tyler Adams en hann kemur frá Leeds United.
Félögin náðu samkomulagi um kaupverð um helgina en Bournemouth greiðir 24 milljónir punda, ekki 20 milljóna klásúluverð eins og miðlar hafa skrifað um.

Sú klásúla var fallin úr gildi samkvæmt Leeds og neyddist því Bournemouth til að greiða aukalega.

Adams skrifaði undir fimm ára samning við félagið en hann var nálægt því að ganga í raðir Chelsea áður en hann fór til Bournemouth.

Þessi 24 ára gamli leikmaður hafði farið í læknisskoðun hjá Chelsea en félagið hætti við að fá hann á síðustu stundu og keypti þá Moises Caicedo og Romeo Lavia í staðinn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.