20.08.26 - 22:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gunnar Vatnhamar: Spiluðum of hægt og ég er glaður að ég er ekki dómari
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur tapaði 1-3 gegn Borac Banja Luka í fyrri leik liðanna í umspilinu um sæti í Sambandsdeildinni. Fótbolti.net náði tali á Gunnari Vatnhamar eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 - 3 FK Borac
„Mjög svekktur, en þetta var bara fyrri hálfleikinn."
„Við spiluðum of hægt og það var of auðvelt að refsa okkur, þeir bara spörkuðu boltanum yfir okkur og skoruðu. Ekki nógu gott af okkar hálfu."
„Ég vil gleyma þessum fyrri háflleik, læra af honum, en mér líður betur með seinni hálfleikinn í kvöld."
„Mér fannst þeir ná að lesa okkur, þeir gerðu vel varnarlega og okkur gekk illa að skapa stór færi eins og við gerum venjulega. Þegar við komumst í tækifæri til að gera færin betri þá tókum við rangar ákvarðanir. Við fáum vonandi betri færi í næsta leik."
„Nei, mér finnst þeir ekki betra lið en við. Þeir spiluðu vel í kvöld, við þurfum að stíga upp á sunnudag (gegn Val) og læra af þessum leik."
„Fótutrinn er held ég í lagi, stífnaði upp eins og gerist í fótbolta. Það er sársaukafullt að stíga í löppina, en ég fékk góða meðhöndlun núna og ætti að vera klár í næsta leik."
Lofar því að Víkingar mæti almennilega til leiks í seinni leikinn
Það styttist í annan endann á dvöl Gunnars hjá Víkingi en hann er á leið til Vejle í Danmörku.
„Ég spái ekki mikið í því, auðvitað smá tilfinningar að spila síðasta Evrópuleikinn á heimavelli. Einbeitingin er á því að spila betur á þeirra heimavelli í seinni leiknum, því ég veit að við getum það og veit að við munum mæta almennilega til leiks í þann leik. Vonandi munum við komast í Sambandsdeildina."
Glaður að vera ekki dómari
Það var mikið um glímubrögð inn á vítateig Borac í leiknum, oft dæmd aukaspyrna á Víkinga, einu sinni vítaspyrna á Borac en það voru augnablik þar sem Víkingar lágu eftir í teig andstæðinganna og kölluðu eftir vítaspyrnum. Áttu Víkingar að fá fleiri víti?
„Ég vil ekki segja neitt um það, dómararnir gera eins vel og þeir geta, vil ekki segja hvað þeir eiga að gera eða ekki. Ég er bara glaður að ég er ekki dómari, það er erfitt starf. En þeir fengu nokkrar aukaspyrnur sem mér fannst mjög ódýrar því þeir voru að halda alveg jafn mikið í okkur. En þannig er þetta bara."
„Aðalatriðið er að við þurfum að spila betur," segir Gunnar.