Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, er harður húsbóndi þegar hann þarf að vera það.
Liverpool vann 2-0 sigur á Chelsea í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Leikurinn breyttist undir lok fyrri hálfleiks þegar Andreas Christensen, varnarmaður Chelsea, fékk að líta rauða spjaldið fyrir brot á Sadio Mane.
Varamenn Liverpool sem sátu upp í stúku klöppuðu og fögnuðu þegar rauða spjaldið fór á loft. Klopp var ekki sáttur með það.
„Klopp snýr sér við á hliðarlínunni og öskrar: 'Eruð þið vitlausir? Við gerum aldrei nokkurn tímann svona, allt í lagi?'" skrifaði franski fjölmiðlamaðurinn Julien Laurens á Twitter.
Red card for Christensen. The Liverpool players in the stands clap and sort of celebrate. Klopp turns round from the touch line and shouts: “Are you crazy? We never ever do that, ok?”
— Julien Laurens (@LaurensJulien) September 20, 2020
Athugasemdir