Romeo Beckham, sonur David Beckham, spilaði í gær sinn fyrsta leik fyrir bandaríska C-deildarliðið Fort Lauderdale.
Þessi 19 ára strákur byrjaði leikinn og var á hægri kantinum eins og pabbi sinn forðum daga.
Fort Lauderdale er varalið Inter Miami, liðsins sem David Beckham á.
Þessi 19 ára strákur byrjaði leikinn og var á hægri kantinum eins og pabbi sinn forðum daga.
Fort Lauderdale er varalið Inter Miami, liðsins sem David Beckham á.
Niðurstaðan í leiknum var 2-2 jafntefli gegn South Georgia Tormenta.
Romeo skrifaði undir samning í september en hann þótti sýna góð tilþrif í leiknum. Með honum á miðsvæðinu var Harvey Neville, sonur Phil Neville sem er stjóri Inter Miami.
David Beckham og Phil Neville spiluðu einmitt saman hjá Manchester United.
Athugasemdir