Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 20. september 2021 19:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Trent og Thiago ekki með gegn Norwich - Firmino byrjaður að æfa
Veikur kallinn
Veikur kallinn
Mynd: Getty Images
Liverpool mætir Norwich í enska deildarbikarnum á morgun.

Liverpool vann vann Crystal Palace 3-0 um helgina í deildinni á meðan Norwich tapaði 3-1 gegn Watford. Endurkoma Norwich upp í Ensku Úrvalsdeildina hefst ekki vel þar sem liðið hefur tapað öllum fimm leikjum sínum til þessa. Liverpool er í 2. sæti með 13 stig eftir 5 leiki.

Liverpool verður án þriggja lykilmanna á morgun en Trent Alexander-Arnold var ekki með um helgina vegna veikinda og hann verður ekki klár á morgun. Það er ekki um Covid að ræða. Thiago þurfti að fara af velli vegna meiðsla og hann missir af næstu tveimur leikjum liðsins.

Þá er Roberto Firmino byrjaður að æfa en hann hefur misst af þremur síðustu leikjum liðsins. Hann verður þó ekki til taks á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner